Opin fósturæð

Fósturæðin (e. ductus arteriosus) er við hjarta barnsins og er staðsett á milli ósæðarinnar og lungnaslagæðarinnar. Hún hefur mikilvægu hlutverki að gegna á meðgöngunni með því að leyfa blóði að streyma um líkamann án viðkomu í lungunum sem ófædda barnið er ekki byrjað að nota. Eftir fæðingu lokast þessi æð vanalega þar sem hún hefur ekki lengur hlutverk.

 

Stundum helst fósturæðin þó opin eða opnast aftur (e. patent ductus arteriosus - PDA) og á það sér sérstaklega stað hjá litlum fyrirburum (1,2). Greining á opinni fósturæð fer fram með ómskoðun á hjarta. Fósturæðin getur lokast án aðstoðar en það er sjaldgæfara hjá fyrirburum en meðal fullburða barna. Þá þarf að gefa barninu lyf til að loka fósturæðinni og dugi það ekki til þarf að framkvæma aðgerð til að loka æðinni (3). Opin fósturæð á sér stað hjá um 20% barna með fæðingarþyngd 1000 til 1500 g (1) og hjá um 50% barna undir 1000 g (3).

 

Heimildir:

  1. Askin, D. F. (2002). Major medical problems. Í J. Zaichkin (Ritstj.), Newborn Intensive Care: What Every Parent Needs to Know (2. útgáfa, bls. 165-209). California: NICU INK Book Publishers.
  2. Kitchen, W. H., Ryan, M. M. Rickards, A. L. og Doyle, L. W. (1989). Fyrirburar: foreldrahandbók (Sigríður Sigurðardóttir þýddi). Reykjavík: Mál og menning (Upphaflega gefið út 1985).
  3. Papageorgiou, A., Pelausa, E. og Kovacs, L. (2005). The extremely low-birth-weight infant. Í M. G. MacDonald, M. M. K. Seshia og M. D. Mullett (Ritstj.), Avery‘s Neonatology (6. Útgáfa, bls. 460-485). Philadelphia: Lippincott Williams & Wilkins (Rafræn útgáfa).

Félagið

Félag fyrirburaforeldra var stofnað árið 2008.

Félagið er ætlað öllum fyrirburaforeldrum til að hittast og ræða saman og til að gæta hagsmuna fyrirbura og foreldra þeirra.

Væntanlegt er hér á vefinn upplýsingar um félagið og lög þess og hvað helst sé á dagskrá hjá félaginu hverju sinni.

Aðalfundur verður haldinn snemma árs og eru áhugasamir beðnir um að fylgjast auglýsingu hér á vefnum og á facebook síðu fyrirburaforeldra.

Um síðuna

Umsjónarmaður síðunnar er Drífa Baldursdóttir lýðheilsufræðingur og fyrirburamóðir. Hægt er að hafa samband í gegnum vefpóst á drifa@fyrirburar.is

Heimasíðan er unnin af Drífu Baldursdóttur fyrirburamóður. Sambýlismaður hennar Sveinbjörn Hafsteinsson og fyrirburamamman Baddý Sonja Breidert sáu um tæknilegu hliðina við uppsetningu heimasíðunnar.

Um verkefnið

Fræðsluefnið sem er á síðunni vann Drífa sem meistaraverkefni í Lýðheilsufræðum við Háskólann í Reykjavík árið 2009, undir leiðsögn dr. Geirs Gunnlaugssonar prófessors við skólann og með samvinnu við yfirmenn Vökudeildar Barnaspítala Hringsins, Þórð Þórkelsson yfirlækni og Ragnheiði Sigurðardóttur deildarstjóra.
Þróunarverkefnið um gerð vefsíðunnar fyrirburar.is hlaut styrk frá Nýsköpunarsjóði Námsmanna árið 2009.

Þessi heimasíða er tileinkuð Hildi Arneyju dóttur Drífu sem kom í heiminn 11 vikum of snemma, því án hennar innkomu í líf hennar hefði þetta verkefni aldrei orðið að veruleika.