Meðgangan

Spurt & svarað

Meðgangan Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Meðgangan

Miklar framfarir hafa orðið í nýburalæknisfræði og fæðingarhjálp og hafa lífslíkur ásamt batahorfum fyrirbura að sama skapi aukist mikið undanfarna áratugi. Framfarir hafa þó ekki verið það miklar að hægt sé að koma í veg fyrir að börn fæðist fyrir tímann (1).

 

Í mörgum tilvikum getur það reynst erfitt þar sem aðdragandi fæðingar getur verið stuttur og áhættumerki ekki sýnileg. En vissir áhættuþættir auka líkurnar á fyrirburafæðingu og með greiningu þeirra og einkenna meðgöngukvilla er hægt að bregðast við hættunni og koma í veg fyrir eða seinka fyrirburafæðingu.

 

Hér verður greint frá aðdraganda flestra fyrirburafæðinga, helstu áhættuþáttum, helstu meðgöngukvillum sem orsakað geta slíka fæðingu og hvað tekur við ef talið er að fyrirburafæðing sé yfirvofandi.

 

Aðdragandi fyrirburafæðinga

Áhættuþættir fyrirburafæðinga

Orsakir fyrirburafæðinga

Yfirvofandi fyrirburafæðing



Heimildir:

  1. Iams, J. D., Romero, R., Culhane, J. og Goldenberg, R. L. (2008). Preterm birth 2: primary, secondary, and tertiary interventions to reduce the morbidity and mortality of preterm birth. The Lancet, 371, 164-176.



Drífa Baldursdóttir. (2009). Fræðsluefni um fyrirbura á vefsíðunni www.fyrirburar.is