|
Skrifað af: Drífa
|
|
Laugardagur, 31. október 2009 01:26 |
Félag fyrirburaforeldra
Félag fyrirburaforeldra var stofnað árið 2008.
Félagið er ætlað öllum fyrirburaforeldrum til að hittast og ræða saman og til að gæta hagsmuna fyrirbura og foreldra þeirra.
Væntanlegt er hér á vefinn upplýsingar um félagið og lög þess og hvað helst sé á dagskrá hjá félaginu hverju sinni.
Aðalfundur verður haldinn fyrrihluta árs 2010 og eru áhugasamir beðnir um að fylgjast auglýsingu hér á vefnum.
Hittingar
Reglulegir hittingar eru á fyrirhugaðir hjá félaginu þar sem foreldrar hittast bæði með og án barna.
Síðasti hittingur foreldra og barna var núna í lok nóvember og þá komu 5 mæður og 11 börn. Myndir frá hittingnum eru væntanlegar á vefinn innan skamms.
Næsti hittingur verður haldinn í febrúar eða byrjun mars og er verið að skipuleggja dagsetninguna á spjallsíðunni. Auglýsing verður sett hingað inn þegar endanleg dagsetning er komin.
|
|
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 11. febrúar 2010 00:30 |