Um síðuna

Spurt & svarað

Um Fyrirburar.is Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Drífa   
Mánudagur, 07. september 2009 18:19

Um vefsíðuna fyrirburar.is

Umsjónarmaður síðunnar er Drífa Baldursdóttir lýðheilsufræðingur og fyrirburamóðir. Hægt er að hafa samband í gegnum vefpóst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

Heimasíðan er unnin af mér Drífu Baldursdóttur fyrirburamóður.  Sambýlismaður minn Sveinbjörn Hafsteinsson sá um tæknilegu hliðina við uppsetningu heimasíðunnar og spjallsíðunnar.

 

Fræðsluefnið sem er á síðunni vann ég sem meistaraverkefni í Lýðheilsufræðum við Háskólann í Reykjavík árið 2009, undir leiðsögn dr. Geirs Gunnlaugssonar prófessors við skólann og með samvinnu við yfirmenn Vökudeildar Barnaspítala Hringsins, Þórð Þórkelsson yfirlækni og Ragnheiði Sigurðardóttur deildarstjóra.

Þróunarverkefnið um gerð vefsíðunnar fyrirburar.is hlaut styrk frá Nýsköpunarsjóði Námsmanna árið 2009.

Þessi heimasíða er tileinkuð Hildi Arneyju dóttur minni sem kom í heiminn 11 vikum of snemma, því án hennar innkomu í líf mitt hefði þetta verkefni aldrei orðið að veruleika.

Hildur Arney fæddist þann 14. febrúar árið 2005 eftir aðeins 29 vikna meðgöngu. Hún var við fæðingu 1505 g og 41 cm. Ég greindist með leghálsbilun þegar ég var komin tæpar 24 vikur á leið og var sett í rúmlegu og í framhaldi lögð inn á meðgöngudeild þar sem ég dvaldi í mánuð áður en fæðingin fór af stað. Á þeim tíma fann ég þörfina fyrir heimasíðu sem þessa og fann hvað það hjálpaði mér mikið að fá góðan tíma til að undirbúa mig og lesa mér til um fyrirbura. Hildur Arney var í 2 mánuði á Vökudeildinni og gekk allt þar framar okkar bestu vonum. Hún er í dag hraust og heilbrigð 4 ára stelpa, þökk sé öllu frábæra starfsfólkinu sem annaðist mig og hana, við erum þeim ævinlega þakklát.

 

 

Þakkir

Geir Gunnlaugsson barnalæknir og prófessor í lýðheilsufræðum við Háskólann í Reykjavík hlýtur sérstakar þakkir fyrir leiðsögnina.

Þórður Þórkelsson yfirlæknir og Ragnheiður Sigurðardóttir deildarstjóri á Vökudeild Barnaspítala Hringsins hljóta kærar þakkir fyrir góða aðstoð og sýndan áhuga.

Atli Dagbjartsson nýburalæknir og fyrrum yfirlæknir Vökudeildar Barnaspítala Hringsins fær þakkir fyrir að kynna sögu fyrirburameðferðar.

Bríet Birgisdóttir, Helga Pálmadóttir og Soffía Eiríksdóttir hjúkrunarfræðingar og samnemar í lýðheilsufræði við Háskólann í Reykjavík sem deildu með mér skrifstofu við gerð verkefninsins kann ég kærar þakkir fyrir aðstoðina við verkefnið, sem fólst sérstaklega í því að yfirfara læknisfræðilegar upplýsingar.

Sveiney Bjarnadóttir fyrirburamóðir fær þakkir fyrir þátt í upphaflegri hugmyndavinnu að vefsíðunni fyrirburar.is sem var uppsprettan að þessu verkefni.

Fjölskyldu minni vil ég þakka innilega fyrir allt saman, sambýlismanni mínum Sveinbirni Hafsteinssyni fyrir stuðning í gegnum vinnuna við verkefnið og börnin okkar þau Benedikt, Hildur Arney og Jóhanna Karen fá þakkir fyrir stuðninginn og innblásturinn.

 

Að lokum vil ég þakka öllu því frábæra fólki sem studdi mig áfram við gerð fræðsluefnisins og vefsíðunnar og aðstoðaði með yfirlestri og með því að sýna verkefninu áhuga.

 

Síðast uppfært: Laugardagur, 13. febrúar 2010 14:56