Spurt & svarað

Innskráning



Velkomin á fyrirburar.is
Hvað á barnið að drekka mikið? Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Drífa   
Mánudagur, 30. maí 2011 23:01

Snáði er alveg þrælsniðugt forrit sem hjálpar foreldrum að finna réttu skammtastærðina fyrir ungabarnið sitt. Margir fyrirburaforeldrar eru óöruggir um hve mikið barnið þeirra eigi að drekka. Foreldrar lítilla tvíburabræðra sem fæddust fyrir tímann komu með þessa frábæru lausn til að hjálpa sér.

 



Síðast uppfært: Þriðjudagur, 31. maí 2011 09:56
 
Prjónað fyrir vökudeild Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Drífa   
Föstudagur, 07. janúar 2011 22:22


Vökudeild Barnaspítala Hringsins fékk á aðfangadag hundruð húfa handa fyrirburum.  Það var Hafdís Priscilla Magnúsdóttir fyrirburamóðir sem stóð fyrir framtakinu „prjónað fyrir vökudeild“ og kom með þessa veglegu gjöf.

Þegar Hafdís var með barn sitt á vökudeild fannst henni vanta húfur í réttri stærð. Í ár langaði hana að gefa vökudeildinni eitthvað nytsamlegt í jólagjöf og vissi að enn væri vöntun á húfum. Hún ætlaði í fyrstu sjálf að gera um tíu húfur og gefa deildinni en ákvað svo að athuga hvort fleiri hefðu áhuga að slást í hópinn. Hún bjó til síðu á facebook í byrjun nóvember og auglýsti atburðinn „pjónað fyrir vökudeild“ og viðbrögðin voru hreint ótrúleg. Mörg hundruð manns skráðu sig til þátttöku á síðunni, prjónuðu og sendu húfur til hennar og á aðfangadag voru húfurnar orðnar um  850-900 talsins og auk þess komu nokkur teppi og sokkar. Húfurnar komu frá öllum landshornum og einnig frá öðrum löndum.  Hafdís fékk góð viðbrögð  frá áhugasömum þátttakendum sem höfðu mikinn áhuga á að taka þátt í svona verkefni aftur.

Hafdís þvoði allar húfurnar heima hjá sér til að þær væru tilbúnar til notkunar og í desember var heimili hennar yfirtekið af litlum barnahúfum að þorna. Húfunum var svo raðað eftir stærð í plastkassa. Á aðfangadag fór hún ásamt fjölskyldunni með húfurnar upp á barnaspítala og færði starfsfólki við góðar viðtökur.  Flestar húfurnar fóru á vökudeild en einnig fékk sængurkvennadeild það sem reyndist of stórt.

Hafdís er strax byrjuð að hugsa um næsta verkefni og segist hafa áhuga á að sauma fyrir deildina að ári og fá  í lið með sér saumakonur landsins. Henni finnst helst vöntun á púðaveri utan um gjafapúðana sem notaðir eru á deildinni og segist einnig  vilja gera sængurver í vöggurnar.

Hafdís vil koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem hjálpuðu til við og prjónuðu fyrir vökudeild og einnig til prjónabúðarinnar Gauju í Mjóddinni sem tók við húfum fyrir hana og gaf auk þess 40 dokkur af garni í verkefnið

á myndinni má sjá tæplega helming af því sem safnaðist.

Síðast uppfært: Föstudagur, 07. janúar 2011 22:53
 
Jólabasar Hringsins í dag Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Drífa   
Sunnudagur, 07. nóvember 2010 15:25

Jólabasar Hringsins í dag

Jólabasar kvenfélagsins Hringsins verður haldinn á Grand Hótel í dag og hefst klukan 13.

Hannyrðavörur, jólakort og glæsilegar kökur að hætti Hringskvenna verða til sölu.

Kíkið við, gerið góð kaup og styrkið þetta frábæra félag.

(mynd: www.visir.is)

Síðast uppfært: Sunnudagur, 07. nóvember 2010 15:27
 
Hringurinn gaf vökudeild 37 milljónir króna til tækjakaupa Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Drífa   
Föstudagur, 05. nóvember 2010 18:36

 

Kvenfélagið Hringurinn færir vökudeild rúmar 37 milljónir til tækjakaupa - október 2010

Kvenfélagið Hringurinn gaf nýlega rúmar 37 milljónir króna til vökudeildar Barnaspítala Hringsins, til kaupa á tækjabúnaði.

Í fréttatilkynningu á vef landspítalans kemur fram að fjármununum hafi verið varið til "kaupa á öndunarvélum, vöggum, hitaborðum, súrefnismettunarmælum og myndavél til að taka myndir af augnbotnum fyrirbura".

Í tikynningunni segir jafnframt:

"Félagið hefur í gegnum tíðina stutt ötullega við starfsemi Barnaspítala Hringsins og með þessari gjöf sýna Hringskonur enn á ný hversu mikilvægt starf þeirra er fyrir velferð sjúkra barna hér á landi".

 

Félag fyrirburaforelda fagnar þessu og færir Hringskonum kærar þakkir fyrir hönd fyrirburaforeldra.

Síðast uppfært: Föstudagur, 05. nóvember 2010 18:38
 
Áhrif sætuefna á fyrirburafæðingar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Drífa   
Laugardagur, 24. júlí 2010 14:37

Niðurstöður nýlegrar rannsóknar gefa til kynna að neysla drykkja með sætuefnum  auki verulega líkurnar á fyrirburafæðingum.

Rannsóknin var unnin af dr. Þórhalli Inga Halldórssyni og félögum sem samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Statens Serum Institut í Danmörku og Harvard og birtist í American Journal of Clinical Nutrition.

Niðurstöður sýndu að þær konur sem neyttu lítra af dag af drykkjum með sætuefnum voru í 78 prósent meiri hættu að eignast barn sitt fyrir tímann og þær sem drukku eitt glas voru í 38 prósent meiri hættu.

Þórhallur bendir á að þörf sé á frekari rannsóknum til að styðja þessar niðurstöður.

Hægt er að lesa umfjöllum á visir.is HÉR og greinina í American Journal of Clinical Nutrition má nálgast  HÉR


Síðast uppfært: Laugardagur, 24. júlí 2010 14:46
 
«FyrstaFyrri12NæstaSíðasta»

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL