Velkomin á vefsíðuna fyrirburar.is
Fyrirburar.is er fræðslusíða fyrir verðandi og núverandi fyrirburaforeldra

Heim

Vefsíðan fyrirburar.is er ætluð fyrirburaforeldrum með börn á öllum aldri og er sérstaklega ætluð verðandi og nýbökuðum fyrirburaforeldrum. Markmiðið er að undirbúa foreldra undir fyrirburafæðingu, dvöl á nýburagjörgæsludeild og hjálpa þeim að takast á við aðstæðurnar.

 

Á vefsíðunni  er fjallað um meðgönguna og helstu orsakir fyrirburafæðinga og greint frá ferlinu sem taki við ef fyrirburafæðing er yfirvofandi. Umfjöllun er um helstu vandamál sem fyrirburar eru líklegir að glíma við á nýburaskeiðinu.

 

Sagt er frá Vökudeild Barnaspítala Hringsins, birtar myndir af deildinni og helstu tækjum og búnaði sem fyrirburar geta þarfnast aðstoðar frá á deildinni og sagt frá virkni þeirra og tilgangi. Fjallað er um tilfinningar foreldra og foreldrahlutverkið á sjúkrahúsinu og foreldrum gefin ráð um umönnun fyrirbura, um heimförina af sjúkrahúsinu, fyrstu árin í lífi barnsins og framtíðarhorfur fyrirbura. Auk þess sem greint er frá helstu réttindum fyrirburaforeldra.

 
Á vefsíðunni er að auki hægt að finna tengla yfir á heimasíður fyrirbura, reynslusögur fyrirburaforeldra, upplýsingar um félag fyrirburaforelda og ýmsan fróðleik um fyrirbura.

Félagið

Félag fyrirburaforeldra var stofnað árið 2008.

Félagið er ætlað öllum fyrirburaforeldrum til að hittast og ræða saman og til að gæta hagsmuna fyrirbura og foreldra þeirra.

Væntanlegt er hér á vefinn upplýsingar um félagið og lög þess og hvað helst sé á dagskrá hjá félaginu hverju sinni.

Aðalfundur verður haldinn snemma árs og eru áhugasamir beðnir um að fylgjast auglýsingu hér á vefnum og á facebook síðu fyrirburaforeldra.

Um síðuna

Umsjónarmaður síðunnar er Drífa Baldursdóttir lýðheilsufræðingur og fyrirburamóðir. Hægt er að hafa samband í gegnum vefpóst á drifa@fyrirburar.is

Heimasíðan er unnin af Drífu Baldursdóttur fyrirburamóður. Sambýlismaður hennar Sveinbjörn Hafsteinsson og fyrirburamamman Baddý Sonja Breidert sáu um tæknilegu hliðina við uppsetningu heimasíðunnar.

Um verkefnið

Fræðsluefnið sem er á síðunni vann Drífa sem meistaraverkefni í Lýðheilsufræðum við Háskólann í Reykjavík árið 2009, undir leiðsögn dr. Geirs Gunnlaugssonar prófessors við skólann og með samvinnu við yfirmenn Vökudeildar Barnaspítala Hringsins, Þórð Þórkelsson yfirlækni og Ragnheiði Sigurðardóttur deildarstjóra.
Þróunarverkefnið um gerð vefsíðunnar fyrirburar.is hlaut styrk frá Nýsköpunarsjóði Námsmanna árið 2009.

Þessi heimasíða er tileinkuð Hildi Arneyju dóttur Drífu sem kom í heiminn 11 vikum of snemma, því án hennar innkomu í líf hennar hefði þetta verkefni aldrei orðið að veruleika.